Það er markmið okkar hér í leikskólanum að börnum líði sem best í leik og starfi. Til þess að þeim líði vel er nauðsynlegt að klæðnaður þeirra sé þægilegur og uppfylli þær kröfur að barninu sé hlýtt, það sé þurrt og fötin hefti ekki við leik.

Útiföt þurfa að vera þægileg og helst þannig að barnið geti hjálpað sér sem mest sjálft.

Á Vestfjörðum er allra veðra von þannig að það er nauðsynlegt að hafa föt við hæfi í leikskólanum.

Þar sem börnin sinna fjölbreyttum verkefnum innan leikskólans þar sem fötin geta blotnað eða orðið skítug. Þess vegna er mikilvægt að börnin séu með föt til skiptanna.

Hér er listi yfir það sem við teljum að nauðsynlegt sé að hafa í leikskólatöskunni. Við skiptum þessum lista í tvennt.
Munið að merkja fötin vel, því við getum ekki þekkt hver á hvað þar sem í leikskólanum eru mörg börn sem eiga eins föt.

1. Útiföt

  • Pollagalli
  • Kuldagalli
  • Hlý peysa
  • Hlý húfa
  • Ullarsokkar
  • 2-3 pör af vettlingum
  • Kuldaskór/ kuldastígvél yfir vetrartímann
  • Stígvél
  • Strigaskór yfir sumartímann
  • Létt húfa eða buff yfir sumartímann
  • Hlýjar buxur undir pollagalla ef pollagallinn er ekki fóðraður.

2. Aukaföt

  • 1-3 nærbuxur
  • 1 nærbolur
  • 2 pör af sokkum eða sokkabuxum
  • 2 buxur
  • 1 bolur
  • 1 peysa


Fylgist líka vel með hvað fer úr töskunni og munið eftir að taka blaut/óhrein föt með heim eftir hvern dag