Eftir hádegismat fara allir hópar í hvíld. Fyrirkomulag hvíldar fer eftir aldri og þroska barnanna í hverjum hóp, yngi börnin sofa, en þau eldri hvíla sig og hlusta á sögur eða tónlist. Svefn er skráður í Karellen þannig að foreldrar geti fylgst með. Á vef Heilsuveru má finna upplýsingar um svefnþörf einstaklinga á öllum aldri. Þar segir um börn 1-2 ára að þau þurfi 11-14 klst á sólarhring og börn 3-5 ára þurfi 10-13 klst á sólarhring.

Hér að neðan er grein Vibeke Mannische, sem er læknir og rithöfundur, þýdd af Sæunni Elfu Pedersen. Segja má að þessi grein sé orðin leiðarvísi margra leikskóla á Íslandi um svefn barna.

"Margir foreldrar leggja mikið á sig til þess að minnka miðdegissvefn barna sinni í góðri trú um að það sé nauðsynlegt til þess að barnið sofni fyrr á kvöldin. Margar rannsóknir sýna að um helmingur foreldra reyna að minnka eða hindra það að barnið sofni eftir hádegi eða vekja barnið í miðjum svefni því þeir óttast það að ef barnið sofi eftir hádegi þá eyðileggi það nætursvefninn. En hádegissvefninn er mjög mikilvægur til þess að barnið fái góðan nætursvefn. Fái barn ekki hádegissvefn verður það orðið mjög þreytt seinni hluta dags og aukning verður á stresshormóninu kortisol, sem undir eðlilegum kringustæðum minnkar á næturnar og eykst svo að morgni til. Þegar barnið verður of þreytt eykst stresshormónið sem þýðir það að barnið á erfiðara en annars með að sofna. Þegar barnið er orðið mjög þreytt veldur það stressi og stresshormóna magnið eykst fyrir svefninn sem þýðir að barnið á erfiðara með að sofna. Skoða þarf hversu margra klukkutíma svefn barnið er að fá í heild á sólarhring.

Foreldrum hættir til að vanmeta svefnþörf barna og oft hafa börn þörf fyrir meiri svefn en þau fá. Hádegissvefn er náttúruleg þörf og hluti af heildarsvefnþörf barns á sólarhring. Börn allt upp að 5 ára aldri geta haft þörf fyrir svefn eftir hádegi vegna uppsafnaðs langtíma skorts á svefni.

Samkvæmt Vibeke er hádegissvefninn jafn mikilvægur og matur og ekki æskilegt að vekja barn í miðjum svefni. Hún líkir því við það að taka matardiskinn frá barni þegar barnið er búið að borða helminginn af matnum sínum. Þegar barnið er vakið eftir t.d. klukkustund þá er barnið í miðjum djúpsvefni og það hefur óæskileg áhrif á líðan barnsins í leik og starfi, það verður stressað , pirrað og órólegt sem hefur áhrif á samskipi þess við börn og fullorðna. Hádegissvefn barna er líka oft kærkomin hvíld frá annríki, hávaða og stressi, sérstaklega í leikskóla umhverfi."

Á vef landlæknis má finna gagnlegar upplýsingar um heilsu og líðan leikskólabarna. Sem og mikilvægi svefns og myndband sem skýrir þetta vel:





Hólabær, Skólabraut 1 | Sími: 434 783