news

Bökunardagar

25 Nóv 2020

Næsta vika verður tekin undir bakstur og munu nemendur baka piparkökur. Venjulega hefðum við boðið foreldrum í kaffiboð en eins og árferðið er núna munu nemendur fá afraksturinn með sér heim í poka.

Bökunardagar verða:

Klettur bakar þriðjudaginn 1. des

Krókur bakar miðvikudaginn 2. des

Kot bakar föstudaginn 4. des

Nemendur mega koma með svuntu og jólasveinahúfu í leikskólann á sínum bökunardegi. Siðan verður mælt, hnoðað og kúlur mótaðar með höndunum. Á svona stundu er líka algjörlega ómissandi að kveikja á græjunum og leyfa jólalögunum að óma. Dásamlegar stundir og við hlökkum til að finna ilminn í húsinu… mmmmmm