news

Búningaföstudagsfjör

30 Okt 2020

Það er heldur betur búið að vera glatt á hjalla hjá nemendum á Arakletti í dag. Allir mættu í búning og margir settu sig í allskonar hlutverk furðuvera. Vinastund var haldin í morgun eins og vaninn er á föstudögum, þar var sungið saman m.a köngulóalagið og afmælissöngur fyrir hana Ellu okkar. Í dag fá nemendur með sér heim hræðilegt draugapopp, þau yngstu fá saltkringlur. Hér koma nokkrar myndir frá því í dag.

Góða helgi öll og hafið það sem allra best