news

Útieldhús

12 Jan 2021

Á mánudaginn fengum við á Arakletti góða gjöf. Nemendur og starfsfólk Patreksskóla mættu með nýsmíðað útieldhús til okkar.

Einar Skarphéðins sá laghenti smíðakennari hannaði og vann verkið með hjálp frá nemendum í Patreksskóla. Virkilega falleg og góð gjöf.

Nemendur á Arakletti eru himinlifandi og við öll þökkum kærlega fyrir.