Leikskólinn Araklettur er þriggja deilda leikskóli: Klettur fyrir börn frá 14 mánaða til 5 ára.

Leikskólinn var byggður árið 1984 og tók til starfa 23. september það ár.

Áður en leikskólinn var byggður var starfræktur gæsluvöllur á sama stað og leikskólinn stendur nú frá árinu 1965.

Árið 1979 var rekinn leikskóli í anddyri félagsheimilis Patreksfjarðar.

Nafnið Araklettur hlaut leikskólinn á 10 ára afmæli sínu þegar efnt var til samkeppni um nafn meðal starfsfólks. Nafnið er dregið af örnefni í grennd skólans. Á fyrri hluta síðustu aldar var sjómaður er lagði upp við klettadrang sem skagaði fram í sjó fyrir um það bil miðju þorpinu. Síðan var kletturinn kallaður Araklettur. Frá þessum tíma hafa orðið miklar breytingar, hluti klettsins sprengdur og vegur kominn fyrir framan hann ásamt mikilli uppfyllingu. Leikskólinn stendur nú á þessari fyllingu í nálægð við klettinn. Á hinn veginn við leikskólann er svæði sem nefnist “Krókur”.Deildirnar þrjár á Arakletti, yngsta deildin Klettur, miðdeildin Krókur og elsta deildin Kot.