news

Útskrift barnanna á Koti

08 Jún 2022

Föstudaginn 3.júní útskrifuðust tólf börn af Koti, sem ætla að flytjast á leikskóladeildina Klif eftir sumarfrí. Það er búið að vera gleðilegt að fylgjast með þessum flottu börnum vaxa og dafna. Við áttum notalega stund með fjölskyldum barnanna í fallegri athöfn þar sem börnin fluttu lag fyrir foreldra sína. Börnin fengu útskriftarskírteyni og birkitré að gjöf frá leikskólanum.

Við óskum þeim hins besta í framtíðinni.